Fara beint í efni

Hvernig Fustle virkar

Frá vinnu að yfirsýn.

Þú byrjar á því sem þú gerðir. Fustle hjálpar þér að halda utan um það sem kemur á eftir.

1. Veldu það sem þú þarft.

Stofnaðu aðgang og bættu við upplýsingum um þig og starfsemina. Veldu Reikning til að senda reikninga, Reikning + Kostnað fyrir meiri yfirsýn eða Laun fyrir umsamin skil í höndum Fustle. Þú sérð innihald, verð og upphaf þjónustunnar áður en þú staðfestir.

Með Reikningi geturðu byrjað á fimm ókeypis sendum reikningum. Prufan gildir einu sinni og breytist ekki sjálfkrafa í greidda áskrift.

2. Skráðu vinnuna.

Veldu viðskiptavin og skráðu verkefni, tíma eða fast verð. Það má vera stórt verkefni eða lítið aukaverk. Þegar kemur að reikningnum velurðu færslurnar sem eiga að fylgja með. Þú getur líka gert reikning beint.

3. Farðu yfir og sendu.

Athugaðu lýsingu, upphæðir, VSK og greiðsluupplýsingar. Sendu reikninginn þegar allt er tilbúið. Fylgstu síðan með greiðslustöðu og sendu áminningu ef reikningurinn bíður enn.

4. Fáðu greitt beint á þinn reikning.

Viðskiptavinurinn greiðir þér. Í almennu áskriftarleiðunum fer reikningsgreiðslan ekki í gegnum Fustle. Þjónustugjald Fustle er greitt sérstaklega með korti.

5. Bættu við því sem fór í verkið.

Með Reikningi + Kostnaði eða Launum geturðu bætt við kvittunum, útgjöldum og akstri. Gervigreind aðstoðar við að lesa kvittunina. Þú ferð yfir upplýsingarnar og vistar. Kostnað má skrá þótt enginn sölureikningur sé kominn.

6. Ljúktu mánuðinum með skýrri verkaskiptingu.

Með Reikningi + Kostnaði vinnur þú eða bókarinn þinn með útreikningana og sérð um skilin. Með Launum ferð þú yfir nauðsynlegar upplýsingar og Fustle sér um umsamin skil og eftirfylgni þeirra.

Í báðum tilvikum greiðir þú eigin skatta og lífeyrisiðgjöld. Sýnileg skilastaða og greiðslustaða hjálpa þér að sjá hvað er búið og hvað er eftir.

Sú leið er því útskýrð sérstaklega.

Byrjaðu þar sem þú ert.

Þú þarft ekki allar þjónustuleiðirnar í einu. Veldu það sem hjálpar við næsta verkefni og bættu við þegar þörfin breytist.

Byrja að reikningsfæra · Finna rétta þjónustuleið

Skýr verkaskipting.

Viðskiptavinir greiða beint á þinn reikning. Þú greiðir eigin skatta og lífeyrisiðgjöld. Með Laun sér Fustle um umsamin skil.

Byrjaðu á næsta verki.

Fyrstu fimm sendu reikningarnir í Reikningi eru ókeypis. Prufan breytist ekki sjálfkrafa í greidda áskrift.

Byrja að reikningsfæra