FreelancePay → Fustle
Takk fyrir að hafa verið með FreelancePay.
Ef þú vilt halda áfram tekur Fustle á móti þér og hjálpar með reikningsgerð og næstu skref í óafgreiddum FreelancePay-málum.
Kynntu þér þjónustuna áður en þú velur.
Í Fustle geturðu valið Reikning, Reikning + Kostnað eða Laun með föstu eða sveigjanlegu verði. Þú sérð hvað fylgir, hvað það kostar og hvenær þjónustan hefst áður en þú samþykkir nýja leið og skilmála hennar.
Í Reikningi, Reikningi + Kostnaði og föstum Launum greiða viðskiptavinir reikningana beint inn á þinn bankareikning. Í sveigjanlegum Launum berst greiðslan til Fustle, sem greiðir nettólaun. Þjónustugjaldið er innheimt með reikningi eða korti, eftir því sem þú velur og hvað er í boði. Með Launum sér Fustle um umsamin skil.
Eldri reikningur þarf ekki nýtt eintak.
Núverandi FreelancePay-aðgangur og greiðslutenglar eldri reikninga verða áfram aðgengilegir. Ekki búa til sama eldri reikning aftur í Fustle. Ef reikningur er ógreiddur eða annað mál ólokið hjálpum við þér að finna rétt næsta skref.
Nýr aðgangur einn og sér staðfestir ekki að öll eldri gögn eða mál hafi verið flutt. Ef þú ert óviss um stöðu máls skaltu spyrja okkur.
Við hjálpum þér áfram.
Skrifaðu á hello@fustle.is og segðu okkur hvaða reikningur, tímabil eða aðgangur er til umræðu. Ekki senda lykilorð eða kortaupplýsingar.