Fara beint í efni

Reikningur

Verkinu lokið. Reikningurinn næst.

Haltu utan um vinnuna, sendu reikning og sjáðu hvað hefur verið greitt. Reikningur gefur þér einfaldan stað fyrir það sem kemur eftir vel unnið verk.

1.990 kr./mán. + VSK. Fyrstu fimm sendu reikningarnir eru ókeypis í eitt skipti.

app.fustle.is

Reikningur

184.250 kr

Tilbúið til yfirferðar

Dagsetning
23.09.2026
Flokkur
Vörur
Yfirfarðu upplýsingarnar

Uppsetningardæmi — ekki skjámynd úr appinu

Byrjaðu á vinnunni sem þú þekkir.

Skráðu viðskiptavin, lýsingu á verkinu og tímana sem fóru í það. Ef samið var um fast verð skráirðu verkefnið án þess að þurfa að bæta við tímum. Þú getur líka gert reikning beint, án vinnuskráningar.

Veldu óreikningsfærð verk og búðu til drög að reikningi. Upplýsingarnar fylgja með, en þú ferð yfir lýsingu, verð, VSK og greiðsluupplýsingar áður en þú sendir.

Sjáðu hvað bíður greiðslu.

Hafðu viðskiptavini, reikninga og greiðslustöðu á einum stað. Þú getur fylgst með útistandandi reikningum, skráð staðfestar greiðslur og sent greiðsluáminningu þegar þess þarf. Eldri reikningar og gögn eru aðgengileg til skoðunar og útflutnings.

Viðskiptavinir þínir greiða reikningana beint inn á bankareikninginn þinn. Áskriftin að Fustle er greidd sérstaklega með korti við upphaf hvers áskriftarmánaðar.

Fimm reikningar til að kynnast Fustle.

Prufan telur fyrstu fimm nýju reikningana sem þú sendir í Reikningi. Drög og vinnuskráningar telja ekki með. Ónotaðir prufureikningar bíða þín milli mánaða; fjöldinn endurnýjast ekki í hverjum mánuði.

Áður en þú sendir sjötta reikninginn velurðu og staðfestir greidda þjónustuleið. Prufan breytist ekki sjálfkrafa í áskrift.

Veldu meiri aðstoð þegar þú þarft hana.

Reikningur er fyrir reikningsgerð og eftirfylgni. Þú sérð um eigin skatta, lífeyrisiðgjöld og skil. Ef þú vilt líka halda utan um kvittanir, kostnað og eigin launaútreikninga geturðu valið Reikning + Kostnað. Laun bætir við umsömdum skilum í höndum Fustle.

Gott að vita

Þarf ég að skrá tíma fyrir hvert verk?

Nei. Þú getur skráð tímavinnu, fast verð eða gert reikning beint.

Sér Fustle um skattaskilin mín með Reikningi?

Nei. Reikningur heldur utan um reikningsgerðina. Þú eða bókarinn þinn sjáið um viðeigandi skil og þú greiðir eigin skatta og lífeyrisiðgjöld.

Hvað verður um gögnin ef ég hætti áskrift?

Þú getur áfram skoðað og flutt út eldri gögn. Nýir reikningar krefjast prufuheimildar eða virkrar þjónustuleiðar.

Byrja á fyrsta reikningnum · Bera saman þjónustuleiðir

Skýr verkaskipting.

Viðskiptavinir greiða beint á þinn reikning. Þú greiðir eigin skatta og lífeyrisiðgjöld. Með Laun sér Fustle um umsamin skil.

Byrjaðu á næsta verki.

Fyrstu fimm sendu reikningarnir í Reikningi eru ókeypis. Prufan breytist ekki sjálfkrafa í greidda áskrift.

Byrja að reikningsfæra